miðvikudagur, ágúst 25, 2004

Aþena Sól

nei það er ekki dóttir mín. Eftir að hafa verið í geðshræringu að horfa á fimleikana (ég slökkti og fór upp í rúm þegar Khorkina datt) þá bjóst ég við einhverju djúsí í kvöld samhliða dýfingum td. En nei það er leikur dauðans, handbolti, Ísland - Brasilía meira að segja "lýsirinn"er að mygla booooring. Íslendingar eru að skíta á sig á móti Brasilíu og núna var hápunktuinn mesta spenna leiksins, skipt um bolta. Af hverju var þessi hópglíma ekki þegar sólin var hér. Ég vil fá dýfingar. Berjast vel í vörninni, kræst við erum að tala um níunda sætið, af hverju þurfa þeir að vera að hossast þarna, frelsum handbolta landsliðið og okkur undan þessum leiðindum, Landsliðið á ströndina. Láta kné fylgja kviði ooog það er lína, gubb þetta væri ekki einu sinni skemmtilegt þó þeir væru naktir, eða berir að ofan. Hef skipt yfir á stöð 2 ruglaða. Handboltahelvítið heldur áfram endursýning, ég slekk.

sunnudagur, júní 20, 2004

Gleðin

Ég hef ákveðið að reyna að lifa tuðlaust við fótboltastórhríðina sem nú dynur yfir. Reyni að hugsa jákvætt og segja mér að þetta veiti svo mörgum gleði, mörgum sem kanski ekki hafa margt að gleðjast yfir.(húhh hugsa jákvætt)
Kosningar á næstu helgi, get ekki sagt að ég upplifi mikla gleði í því sambandi. Finnst eins og þjóðin sé föstu í einhverjum farsa, það verður áhugavert að lesa um þetta eftir 30 ár. Þá verða áreiðanlega einhverjir ráðamenn búnir að fá "greiningu", þeir hlóta amk. að vera á einhverju "rófi" andstöðuþrjóskuröskun kemur í hugann. Er að spá í að segja upp Morgunblaðinu hef aldrei tíma til að lesa snepilinn og finnst hann orðin heldur þunnur, blaðið í dag (sunnudagsblaðið)er td. ótrúlega rýrt. Getur hugsast að blaðamennirnir séu uppteknir af a) forsetakosningunum b)evrópukeppninni, bíð róleg til 4. júlí. well hugsa jákvætt.

mánudagur, júní 14, 2004

Afmælisfótbolti

Sérðu þetta, sérðu hvernig hann tekur boltann alveg fljúgandi, tekur hann bara í lausu lofti(lesist með tilþrifum). Ef þessi umræða á ekki eftir að fara alveg með mig. AAARRG. Hvernig væri að sýna Sex and the city á hverjum degi svona til að fá smá jafnvægi í dagskrána. Best væri að sýna einn þátt af SATC á móti einum fótboltaleik. Þetta er mikill afmælismánuður,tvö afmæli hjá okkur MHE 17. og ESM 27. vorum í einu baranafmæli áðan, sem lengdist óvænt, já getið þið bara óvæntir gestir í baranafmæli Sænska fótboltalandsliðið og það Búlgarska. Pabbarnir tóku vel á móti þeim.

laugardagur, júní 12, 2004

Maaaaarrk

Þá hefst enn og aftur ein leiðindar fótbolta stórhríðinn. Heilög stund fyrir framan imbann. Fram til 4 júlí (þá eigum við hjónakornin brúðkaupsafmæli) verða sýndir alls 31 leikur (=62 klst). Svo þarf að horfa á samantektina og aðra fótboltanörda tala um aukaspyrnur og afhverju þessi og hinn var ekki settur inná og allt það (slæ á 20 klst). Kræst. Ég mun að sjálfsögðu halda með Ítölunum, áfram Impregilo, bara af því að þeir eru í flottustu búningunum og eru lang huggulegstir þó Thierry Henry franskættaði sé líka mjög huggulegur í sínum boltaballet. Svo er bara málið að nota tímann vel á meðan karlpeningurinn er lamaður í sófanum. Fara í Kringluna og Smáralind og allt það og versla og eyða og spenna, koma svo heim og sýna allt fíneríið og það er alveg öruggt að sá boltaði tekur ekki eftir neinu. Svo þær sem eru í þeirri aðstöðu að þurfa að smygla nýjum fötum og skóm inn í skápana (til að forðast nöldur og skilningsleysi)nú er tækifærið að moka inn nöldurfrítt. Allir græða!!

fimmtudagur, apríl 01, 2004

Fimmtudagur

Dagurinn var of fljótur að líða. Við hjónakornin kláruðum skattframtalið. Guðbjörg hjúkrunarfræðingur kom í morgun og kíkti á krummadísina viktaði hana og skoðaði. Krumma er orðin 5550 gr og er fullkomin í alla staði hún hjalaði og skríkti og sýndi sínar allara bestu hliðar. Ég tók þunglyndispróf........ er ekki þunglynd. Sú vitneskja hleypti í mig mikilli framkvæmdagleði, losaði mig við nokkra fatakassa upp á háaloft.

miðvikudagur, mars 31, 2004

fermingar afmæli

Undirrituð á afmæli næstkomandi laugardag 3. apríl ásamt nokkrum öðrum góðum hrútum. Er að spá í hvort ég eigi að hafa eitthvað tilstand í tilefni dagsins. nánar um það síðar. Fór í dag og keypti bleikt stuff fyrir skírnarveislu krummadísar, var að væflast um í Blómaval með fermingarmömmum, þær voru að sækja merktu servíetturnar og merktu kertin,blaðandi í "fermingarmöppurnar" til að halda utan um allt tilstandið. (þarna er komin viðskiptahugmynd) Hvað er þetta með merktar servíettur, næ því ekki, er betra að þurrka sér um munnin með gyllingu,hvað ætli þessi óþarfi kosti? Fann það hér hjá Völusteini, gylling á sérvíettur kostar ca 2000 kall , það besta er að þeir sem vilja geta látið gylla merki uppáhald félagsliðsins í ensku. Amen

komin heim

jæja þá erum við komin heil heim úr helgarfríinu. fórum í "sumarbústað" starfsmannafélags Vifilfells. Ekki amalegt slot það. Áttum þar góða langa helgi, fengum líka góða gesti. Og þessi maraþon samvera tókst bara vel. Nú er ég að velta fyrir mér að segja fólki frá þessu spjalli.

mánudagur, mars 22, 2004

sóttkví

Við hjónin náðum okkur í veirusýkingu í auga. Einar er búin að vera fóðra þessar veirur í 10 dag. Ég fékk mínar á föstudaginn. Af því tilefni gafst okkur tækifæri til að kynna okkur íslenska heilbrigðiskerfið. Eintóm bið, biðum í tvær klukkustundir á augn-göngudeildinni. Núna erum við í sóttkví, þeir sem heimsækja okkur gera það á eigin ábyrgð. Við verðum endurmetinn á augndeildinni á þriðjudaginn. Verð sennilega að breyta jóganu sem ég var byrjuð í. auga fyrir auga....