miðvikudagur, mars 31, 2004

fermingar afmæli

Undirrituð á afmæli næstkomandi laugardag 3. apríl ásamt nokkrum öðrum góðum hrútum. Er að spá í hvort ég eigi að hafa eitthvað tilstand í tilefni dagsins. nánar um það síðar. Fór í dag og keypti bleikt stuff fyrir skírnarveislu krummadísar, var að væflast um í Blómaval með fermingarmömmum, þær voru að sækja merktu servíetturnar og merktu kertin,blaðandi í "fermingarmöppurnar" til að halda utan um allt tilstandið. (þarna er komin viðskiptahugmynd) Hvað er þetta með merktar servíettur, næ því ekki, er betra að þurrka sér um munnin með gyllingu,hvað ætli þessi óþarfi kosti? Fann það hér hjá Völusteini, gylling á sérvíettur kostar ca 2000 kall , það besta er að þeir sem vilja geta látið gylla merki uppáhald félagsliðsins í ensku. Amen

komin heim

jæja þá erum við komin heil heim úr helgarfríinu. fórum í "sumarbústað" starfsmannafélags Vifilfells. Ekki amalegt slot það. Áttum þar góða langa helgi, fengum líka góða gesti. Og þessi maraþon samvera tókst bara vel. Nú er ég að velta fyrir mér að segja fólki frá þessu spjalli.